Hringhamar 9-19
Í maí 2024 eru væntanlegar til afhendingar glæsilegar íbúðir við Hringhamar á Hamranessvæðinu í Hafnarfirði. Um er að ræða fjölbýlishús sem að staðsett eru innarlega (austarlega) í hverfinu, í fallegri, skjólgóðri skál í landslaginu, nálægt þar sem að Ásvallabrautin kemur inn i hverfið úr Ásahverfinu í Hafnarfirði. Umhverfið er því hlýlegt og húsin liggja sérstaklega vel við samgöngum.
Skráið ykkur á póstlista
Um Íbúðir
Íbúðirnar verða 2-4 herbergja frá 55 til 120 m², auk glæsilegra þakíbúða. Þar af eru 61 þeirra 80 m² eða minni.
Hamraneshverfið í Hafnarfirði er náttúruhverfi í hraðri uppbyggingu, bæði íbúðir og allir innviðir. Sex deilda leikskóli, miðsvæðis á svæðinu, er á leið í útboð en þegar eru leikskólar í Skarðshlíð og Hamranesi sem að sinna eiga þörfum íbúa þangað til. Undirbúningur útboðs á sameiginlegum leik- og grunnskóla er í gangi og útboði vegna hjúkrunarheimilis í hverfinu er nýlega lokið.
Íbúðirnar eru í Svansvottunarferli en Svansvottun er haldið úti af Umhverfisstofnun og gefin út af þeirri stofnun. Í henni er lögð áhersla á umhverfisvæna efnisnotkun, orkuendurnýtingu og að allur frágangur og vinna sé sem umhverfisvænust. M.a. er í íbúðunum loftræsting sem að endurnýtir varma og endurnýjar allt loft í íbúðinni með reglulegu millibili sem að dregur úr hættu á rakaskemmdum í íbúðinni.
Um MótX
MótX ehf. er byggingaraðili verkefnisins og eigandi. MótX ehf. er alhliða byggingafélag og var stofnað árið 2005 og hefur starfað óslitið síðan. MótX ehf. hefur getið sér gott orð sem framleiðandi íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis á þessum tíma. Félagið hefur fengið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingasvæði.
Félagið leggur metnað sinn í það að þjónusta kaupendur sína vel, bæði á ábyrgðartíma húsanna (5 ár) og vel fram yfir það. Félagið hefur byggt yfir 400 fjölbýlishúsaíbúðir á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum 10 árum við góðan orðstír, auk iðnaðarhúsnæðis, og hefur eignast fjölda ánægðra viðskiptavina.
Tölvumyndir og teikningar á síðunni eru til viðmiðunar og kunna að taka breytingum á verktíma.
Vefhönnun og vinnsla: ONNO ehf.